Ásta hefur saumað vörurnar frá Bara síðan árið 2005.
Verkkunnátta hennar og reynsla hefur átt drjúgan þátt í því að þróa og einfalda
alla verk- og framleiðsluferla.
Það skiptir Ástu miklu máli að öll efni séu vönduð, snið nákvæm og áhöld og
vélar í lagi.
Fagleg vinnubrögð og þolinmæði einkenna hennar störf og endurspeglast alúð hennar, ást og gætni í vönduðum frágangi á vörunum sem notendur og við hjá Bara njótum ómetanlega góðs af.