Upplýsingar
Bolstuðningurinn fyrirbyggir kreppur og aflaganir í vöðvum og liðum
BACKUP er sérsniðin að hverjum
notanda
Copyright
bara BACKUP © er framleitt á Íslandi og hefur skráða
hönnunarvernd.
Um BACKUP
BACKUP bolstuðningspúði veitir notandanum stöðugan samhverfann
bolstuðning í baklegu og í sitjandi stöðu til að fyrirbyggja kreppur og aflaganir í
vöðvum og liðum. BACKUP er sérsaumaður eftir líkamsmáli notandans
til að fá bestan mögulegan hliðarstuðning frá holhönd og niður að mjöðm beggja
megin. Reynslan sýnir að þessi þægilegi en þétti bolstuðningur hefur róandi áhrif á
notandann og stuðlar að auknum svefngæðum og vellíðan. Leiðrétt samhverf líkamsstaða
helst betur hvort sem notandinn liggur eða situr í púðanum því
BACKUP skorðast af líkamsþunga notandans og aflagast ekki.
Einstaklingar sem eiga erfitt með að sitja uppréttir og vinna gegn þyngdarkraftinum
sem vill toga líkamann út í aðra hliðina geta haft góð not af
BACKUP til að bæta setstöðuna. Frá upphafi hefur fagfólk mælt með
BACKUP vegna notagildisins og hversu auðveldur hann er í notkun.
Púðinn er léttur og þægilegur að taka milli staða og hægt að nota í flestum gerðum
af rúmum, dýnum, stólum og sætum.
Meðferðaraðilar eða stoðtækjafræðingar mæla fyrir réttri stærð á hverju eintaki af
BACKUP.
Ítarlegri Upplýsingar
Efni
bara BACKUP er gert úr mjög vönduðu áklæðisefni sem er mjúkt
viðkomu, auðvelt í umhirðu og heldur lögun sinni þrátt fyrir þvotta.
Efnið er 88% polyester, 12% polyurethane og
inniheldur trefjar sem eru eldhamlandi og antí-statísk (bera ekki
stöðurafmagn).
Innra-verið sem inniheldur fyllinguna í púðanum er úr 100%
bómull.
Sem fyllingu í bolstuðningspúðanum notum við örlitlar tregbrennanlegar
polystyrene perlur sem veita þéttan stuðning og rýrna lítið.
Rennilásar eru á öllum fjórum púðunum svo hægt er að bæta við eða minnka
magnið af polystyrenperlum í öllum fjórum hólfum BACKUP til
að ná fram bestum bolstuðningi og líkamsstöðu.
Þvottaleiðbeiningar
Efnið er auðvelt í umhirðu og hægt er að fjarlægja flesta bletti með
efnis-bursta, eða strokleðri.
Þá er líka hægt að notast við lausn af volgu vatni og hlutlausu þvottaefni.
ATH: Mikilvægt er að taka innra-verin með
polysterin-perlunum úr púðanum áður en púðaverið er þrifið í þvottavél.
Einnig má þvo efnið á 74° en
það viðheldur ekki eldvörninni í efninu.
Hér er hægt að lesa
frekar um comfort+ efnið.
Þyngd
& Stærð
bara BACKUP er alltaf sérsniðið að hverjum notanda fyrir sig
og er ekki selt í fyrirfram ákveðnum stærðum.
Bolstuðningspúðinn er léttur og meðfærilegur og vigtar sjaldan meira en
700g sniðinn að fullorðnum einstaklingi.